„Það hefur komið snjór áður en ekkert í líkingu við þetta. Þegar við vorum að byggja þessi hús, manni datt nú ekki í hug að maður þyrfti að moka af þessum þökum. É g held það séu níu metrar upp í stafninn á hæsta húsinu og þau eru snarbrött líka.“
Þetta segir Valgeir Þorvaldsson, forstöðumaður Vesturfarasetursins á Hofsósi. Hann hafði nýlokið við að aðstoða um 30 hross að komast á gjöf í fannferginu þegar mbl.is sló á þráðinn.
„Þetta er kannski ástæðan fyrir því að fólkið fór til vesturheims,“ segir Valgeir, en eins og sjá má af myndum sem dóttir Valgeirs tók er Kvosin, sem hýsir Vesturfarasetrið, nánast á kafi í snjó eftir óveðrið í síðustu viku.
via climate science
December 21, 2019 at 04:40PM

Reblogged this on Climate- Science.press.
LikeLiked by 1 person